Skrá kisur hér skv. neðangreindum leiðbeiningum og skilmálum. 

Öll samskipti varðandi skráningu, afskráningu og Facebook auglýsingar; fara í gegnum rafpóstfangið kisa@kattaskrain.com en ekki í gegnum samfélagsmiðla. 🙂

Eigandi kisu samþykkir við skráningu að myndir og meðfylgjandi upplýsingar verði birtar á samfélagsmiðlum almennt. Á það við um hvort sem kisur eru týndar eða ekki. Með því að skrá kisu týnda í skránni samþykkir eigandi kisunnar að Kattaskráin auglýsi kisuna týnda og geti í því skyni notast við allar þær upplýsingar sem birtast með skráningunni. Vilji eigandi hafa annan hátt á; t.d. að birta ekki t.a.m.  nákvæmt heimilisfang, símanúmer eða annað; þá vinsamlegast taka það fram við skráninguna, og verður orðið við slíkum óskum.

Sendu mynd af kisunni þinni á tölvupóstfangið: kisa@kattaskrain.com. Þú getur sent inn nokkrar myndir og verður sú valin sem best hentar til að bera kennsl á kisuna.

Kattaskráin lagar myndir, eftir því sem hægt er!

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja með:

VINSAMLEGAST LESIÐ ALLAN TEXTANN OG SVARIÐ ÖLLUM ATRIÐUM Í SÖMU RÖÐ HÉR AÐ NEÐAN!

-Nafn (kisu).

-Læða/fress.

-Fæðingarmánuður/ár.

-Innikisa/útikisa.

-Litur/litir.

-Litur/litir á loppum.

-Helstu sérkenni.

-Geld(ur)/Ógeld(ur).

-Örmerkt.

-Með ól eða ekki? Ef svo; hvernig er hún?

-Ef með ól; hvernig er hún merkt?

-Heimilisfang:

-Póstnúmer kisu:

-Eigandi:

-Kennitala eiganda: (ekki birt)

-Símanúmer (engin bil eða strik):

-Netfang: 

-Er kisan Týnd/ekki týnd:

-Ef kisan er týnd þá taka fram hvenær og hvar.

Kattaskráin er með þá þjónustu að birta sérstakar auglýsingar á víðfeðmu samtengdu neti Kattaskráarinnar á Facebook; Þegar kisur eru skráðar týndar í Kattaskránni. 

Kattaskráin rekur yfir 50 hjálparhópa á Facebook fyrir kisur, eftir póstnúmerum. 

Birting upplýsinganna úr Kattaskránni á samfélagsmiðlum getur hjálpað verulega við að bera kennsl á kisurnar enn frekar. 

Kattaskráin birtir í þessu tilefni auglýsingu um að kisan sé týnd á tugum hjálparsíðna; með öllum upplýsingum úr Kattaskránni. þegar kisan finnst þá breytast auglýsingarnar á Facebook sjálfkrafa í "FUNDIN" Þá eru allir kisuvinir sem fylgjast með afdrifum kattanna á sömu blaðsíðu. 

Gott er fyrir kisueigendur að gerast félagar á Facebook síðum Kattaskráarinnar, sérstaklega síðunni

KATTASKRÁIN - THE CATaloque. 

Aðrar Facebook hjálparsíður eru eftir flestum póstnúmerum landsins:

Gott er fyrir kisueigendur og dýravini að vera skráð í alla "Kettir á svæði.....) hópanna á Facebook.

Vinsamlegast munið að senda Kattaskránni tilkynningu þegar kisan finnst. kisa@kattaskrain.com. Kisan verður þá afskráð úr "TÝNDAR KISUR" en verður áfram skráð á sitt svæði (póstnúmer). Mjög gott er að láta upplýsingar fylgja um: hvernig fannst kisan? Hvernig voru borin kennsl á kisuna? Hvernig var ástand kisu? Fréttastubbur um málið birtist síðan á víðfeðmu samtengdu Facebook neti kattasíðna.   

Kattaskráin mun ekki tilkynna um skráningu eða afskráningu; en hvetur kisueigendur til að fylgjast með skráningu sinna katta. Ef skráning kisu birtist ekki á sínu svæði eða í "TÝNDAR KISUR"  þá endilega ítreka skráninguna!

*************** ALLAR KISUR Í KATTASKRÁNA! ***************